minnst 11 tímar í hverri viku

á tímabilinu sept – maí. 

POP UP tímar á sínum stað, reglulega á sunnudögum 1-2x í mánuði.

Erfiðleikastig og ákefðarbylgjur

Hljómar kannski flókið, en hvað þýðir þetta fyrir þig sem almennan iðkanda hjá Metabolic Eyjar? 

Erfiðleikastig

Í hverjum tíma eru nokkur erfiðleikastig af sama tímanum í boði, það köllum við MB 1-3, þar sem “MB” stendur fyrir Metabolic.  Allar æfingar eru í boði í öllum tímum og þjálfarinn stýrir upphitun fyrir alla, útskýrir töflur og veitir aðstoð. Allar þessar æfingar eru betur útskýrðar hér fyrir neðan. 

Tegundir metó tíma

styrkur, kraftur, þol og brennsla

Hver æfing í Metó kerfinu hefur ákveðinn tilgang. Tilgangurinn er alltaf til að bæta frammistöðu og heilsu með einum eða öðrum hætti – en aldrei útlitslegur. 

 

Styrktaræfingar eru á mánudögum og föstudögum, aðrar æfingar lenda tilviljanakennt á hinum dögunum (brennsla, þol og kraftur).

Ákefðarbylgjur

Ákefð eykst eða minnkar á milli vikna í æfingakerfinu okkar. Æfingakerfið hefst á viku 1 og álag eykst jafnt og þétt í fjórar vikur allt upp í viku 4. Þá minnkar ákefðin aftur. Þetta kallast bylgjukennt æfingaálag og er sett upp til að iðkendur fái breytileika en aðallega hvíld í æfingum.

Vika 1 – býður upp á einfaldara æfingaval og lengri hvíldir milli setta. Þetta er besta vikan til að hefja heilsuferðalagið og frábær tími fyrir lengra komna til að bæta tækni í ákveðnum lyftum. Við köllum þetta recovery viku, þó hún sé ekki alltaf létt. Þetta er einnig vikan sem við vinnum mest á aðra hliðina og setjum þannig sérstaka áherslu á core-vinnu.

vika 2 – aðalmunurinn á milli vikna hér er æfingatíminn, vinnutími lengist og hvíldin styttist, semsagt: meiri ákefð í  uppsettri æfingu. Ef þú þyngdir í síðustu viku er markmið að halda þyngdum áfram hér. 

Vika 3 – hér eru komnar inn flóknari æfingar; margliðamótaæfingar og fleiri æfingar með þyngdum í hærri erfiðleikastigum. Hvíldin styttist meira og ákefðin eykst. Í þessari viku fáum við alltaf Barbarian æfinguna, en við vitum ekki hvenær! 

Vika 4 – þyngsta og hraðasta vikan! Markmið að halda þyngdum frá viku 1 og halda út tímann! Vertu tilbúin/n til að leggja meira á þig en í viku 3. 

tegurndir tíma í metó kerfinu

Metó tímarnir eru uppsettir út frá orkukerfum líkamans. Power (kraft) tímar hafa stysta vinnutímann yfir í endurance tímana (þol) þar sem jafnvel engin hvíld er í boði. Álagið er augljóslega ekki eins í þessum tímum.

POWER – 6-12 sek vinnutími, sprengikraftur og snerpa! Hvíldartími er langur, jafnvel þrefalt-fimmfalt lengri en vinnutíminn. Í þessum tíma er markmiðið að vinna með orkuna sem er til staðar í vöðvunum okkar hveru sinni (loftfirrta vinnnan). Því betra formi sem við erum í, því hraðar getum við unnið og þolum styttri hvíldir á milli. 

STRENGTH – 10-60 sek vinnutími, vinnum ýmist í vöðvastyrk eða vöðvaþol! (blanda af loftfirrtri og loftháðri vinnu) Í vöðvastyrk erum við að vinna stutt og með lengri vinnutíma og markmið er að þyngja – ef þú þarft ekki hvíldina á milli setta, ertu líklega ekki að taka nógu þungt! Í vöðvaþolinu erum við meira að vinna með úthald vöðvanna undir álagi, miklu lengri vinnutími og styttri hvíldir.

ENDURANCE – 1-20 mín vinnutími. Úthaldstíminn okkar og loftháða vinnan! Þetta er tíminn sem æfir okkur fyrir langhlaupin og fjallgöngurnar. Markmiðið er að geta unnið á góðu tempói allan vinnutímann, án þess að stoppa og án þess að sprengja sig! 

BURN – þessi tími er blanda af þol og styrk! Oft eru þetta erfiðustu tímarnir þar sem við erum að mixa á milli þess að vinna á hröðu tempó (þol) og þungu hægara tempói (styrkur). Þetta eru að margra mati lang skemmtilegustu tímarnir! 

MB1-3

Metabolic hóptíminn þar sem þú velur erfiðleikastig eftir þínu dagsformi.

Æfingarnar eru fyrir öll orkukerfi líkamans og því erum við ýmist að vinna með: kraft (power), styrk (strength) eða þol (endurance).

Ný æfing á töflunum á hverjum degi.

mömmur - lokað

Mömmu Metó er hóptími sérstaklega sniðinn að mæðrum með ung börn.

Áherslan er á djúpvöðvastyrk og léttar þolæfingar, hver og ein getur stjórnað ákefð á æfingum.
Börnin eru velkomin með!

4-6 vikna námskeið sem hefjast ýmist í upphafi mánaðar eða um miðjan mánuð.

MST og MB4

MST er styrktaræfingakerfi Metabolic. Hér er gert ráð fyrir plássi í hnébeygjurekka og að æfingar séu gerðar með stöng.

MB4 er hið eina sanna HIIT kerfi Metabolic.

Hér er hægt að velja um að vinna á vindhjóli (assault) eða concept róðravélum.

Þessar æfingar eru ekki notaðar í almennum opnum tímum hjá Metabolic Eyjar eins og er.

Unglingar

Nú er hægt að nýta frístundastyrk Vestmannaeyjabæjar hjá Metó.

Frístundastyrkur er veittur öllum börnum undir 18 ára sem hafa lögheimili í Vestmannaeyjum.

Unglingar undir 16 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum.

Stoðkerfishópur - lokað

Stoðkerfistímarnir eru fyrir alla þá sem þurfa aðeins ítarlegri þjálfun en við getum gefið í almennu tímunum, eða komast ekki þá.

4-6 vikna námskeið, sérstaklega auglýst hverju sinni.

Áskrift gefur líka aðgang í alla opna Metó tíma - ATH einnig í Rvk, Reykjanesbæ og Borgarnesi.

Mest 12 manns á námskeiðinu hverju sinni.

POP UP

Uppbrots tímar með ýmsum áherslum.

Ertu með skemmtilega tillögu?

Þessir tímar fara fram á sunnudögum og eru auglýstir sérstaklega.

Gott
að vita

Góður undirbúningur er lykillinn að ánægjulegri upplifun og góðum árangri. 

Failing to prepare,
is planning to fail.
-Benjamin Franklin.

Nauðsynlegt

Komdu með íþróttaföt og skó til inniæfinga.

Vatnsbrúsi er einnig nauðsynlegur. 

Fiskari

Við bjóðum þeim sem eru einungis í landi hluta úr mánuði sérstök kjör. Hafðu samband á [email protected] til að fá meiri upplýsingar. 

Næring

Nærðu þig vel helst 2 klst fyrir æfingu. Ef þú nærð því ekki vegna tímaskorts, eins og t.d. fyrir morgunæfingu, fáðu þér þá eitthvað létt, eins og banana. 

Passaðu uppá að fá nægt prótein í hverri máltíð eftir að þú byrjar að æfa.

Klefar

Við erum ekki með klefa í boði, en við erum í sama húsi og sundlaugin. Snilld að eiga kort í sund til að komast í sturtu eftir æfingu.  

Strætó

Enginn strætó í Eyjum

bílastæði

Það er nægur fjöldi bílastæða fyrir utan hjá okkur og í kringum húsið við Íþróttamiðstöðina, þar sem við erum staðsett. 

Afsláttur

Metabolic Eyjar á nokkra góða samstarfsaðila sem veita áskrifendum fín afsláttarkjör. Meðal samstarfsaðila má nefna Hreysti, Fætur toga og Wodbúðina.

Sendu póst á [email protected] eða kíktu í lokaða áskrifendahópinn á Facebook til að fá meiri upplýsingar

Systurstöðvar

Meðan þú átt áskrift hjá okkur kemstu í tíma hjá 

Metó Reykjavík

Metó Borgarnesi og 

Metó Reykjanesbæ

 

Við erum einnig með samstarfssamning við TFW á Akureyri 

Algengar spurningar

Þú þarft íþróttaföt og íþróttaskó, einnig er gott er að hafa vatnsbrúsa. Ekki gleyma handklæðinu! 

Við erum með rúmgóða klefa þar sem er nóg pláss til að skipta um föt og fara í sturtu á eftir. 

Þú velur erfiðleikastig þegar þú mætir á staðinn og getur þannig leyft dagsforminu að ráða. 

Veldu á milli MB1-2 eða MB3.

Já, Metabolic hóptímar eru fyrir fullorðna einstaklinga, þ.e. alla sem hafa náð 18 ára aldri. 

Við gerum undantekningu fyrir börn iðkenda okkar. Ef þú átt barn sem er í 7. bekk eða eldra, þá má unglingurinn æfa, alltaf með þér, hjá Metó Eyjar. 

Við rukkum helmings verð fyrir unglinga sem vilja æfa með foreldrum sínum á þennan hátt. 

Já, við erum með tvo rúmgóða búningsklefa með sturtum, annan fyrir konur og hinn fyrir karla. 

Fyrir öll önnur erum við með einkaskiptiklefa, en þó án sturtu.

Ef meiðslin eru ekki alvarleg og þú treystir þér, mælum við alltaf með hreyfingunni! 

talaðu við þjálfarann á staðnum og hann mun hjálpa þér að aðlaga æfingarnar að þinni getu, þannig að þú hafir bæði gott og gaman af tímanum. 

Ekki er hægt að segja upp áskriftum!

Allar áskriftir sem við seljum í dag, hafa lokadagsetningu og taka enda. 

Í framtíðinni þegar við förum að selja ótímabundnar áskriftir sem rúlla endalaust, tökum við inn uppsagnarákvæði. 

Allir hóptímar eru á bilinu 45-50 mín.

Ef þeir eru styttri, þá höfum við líklega gleymt upphitun, finisher eða teygjum í lokin. 

Við vitum að foreldrar eru bestu fyrirmyndir barna sinna og börn eru velkomin að fylgjast með foreldrum sínum æfa.

EN á meðan æfingunni stendur verða öll börn að vera í stúkunni. Það er regla sem við setjum öryggisins vegna, fyrir börnin og fyrir alla iðkendur. 

Enginn vill óvart lenda í því að meiða barn. 

Ef barnið er í kerru eða stól og er ekki að fara að hlaupa í burtu, má foreldri æfa við hlið barnsins í salnum, í jaðri æfingasvæðisins. 

Við mælum með að hafa peltor (eyrnahlífar) fyrir yngstu börnin, tónlist er stundum há.